Andskynsemi
Orð eða aðgerðir sem innihalda eða dreifa röngum upplýsingum.
Fínt orð yfir bull og vitleysu. Til dæmis það sem sjálfskipaðir sérfræðingar á samfélagsmiðlum (kóvitar og sófasérfræðingar) segja um málefni sem eru í umræðu hverju sinni, án þess að hafa vit eða þekkingu á þeim.
Uppruni
Orðið kom fram í viðtali við Jón Atla Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, í janúar 2021.
Hefur þó verið til mun lengur. Elsta prentaða dæmið á vefnum timarit.is er úr Tímariti Máls og menningar frá árinu 1971.
Dæmi um notkun
„„Það er áhyggjuefni hversu útbreidd andskynsemi eða andupplýsingar er nú á tímum,“ segir Jón Atli og vísar þar til þeirra sem hafa hvata af því að dreifa röngum upplýsingum á framfæri.“