Málfarslögreglan kastar áramótasprengju inn í nýja árið og stingur upp á nýjum eða gömlum daganöfnum, svarar bréfum frá hlustendum og segir frá úrslitum kosninga um orð ársins 2020.

  • Ættum við að breyta nöfnum á vikudögum?
  • Kannast hlustendur við orðtakið „setja rass á laggir“?
  • Er eitthvað sérstakt við annan dag jóla? Heitir dagurinn eitthvað annað?
  • Hvert er orð ársins 2020?

Svör við þessum spurningum gætu leynst í átjánda þætti.