Samkomubann
Bann við hvers kyns skipulögðum fjöldasamkomum fólks.
Oft er settur hámarksfjöldi fyrir fólk sem má hittast. Til dæmis 20-100 manns.
Uppruni
Birtist fyrst á prenti, svo vitað sé, í Morgunblaðinu 8. febrúar 1919.
Mikið notað í daglegri umræðu frá og með vorinu 2020, í tengslum við útbreiðslu Covid-19-veirunnar.
Dæmi um notkun
„Þegar klukkan sló eina mínútu yfir miðnætti gekk samkomubann í gildi á Íslandi, en það mun standa næstu fjórar vikurnar eða til 13. apríl kl. 00:01.“
(Mbl.is 16. mars 2020: Samkomubann tekur gildi á Íslandi)