Skaufaglöp
Þegar menn geta ekki tjáð málefnalega gagnrýni á kvenkyns andstæðingi og reyna í stað þess að lítilækka með lítilmótlegri og kynferðislegri orðræðu.
Skaufaglöp geta stigmagnast þegar karlmenn koma saman í hóp og sérstaklega þegar öl er haft um hönd.
Skaufaglöp geta verið á misháu stigi. Þau verða alvarlegri eftir því sem menn finna til meiri vanmáttar.
Dæmi:
- „Hún er ekki jafn „hot“ í dag og fyrir tveimur árum.“
- „Það fellur hratt á hana.“
Uppruni
Orðið kom fyrst í umræðuna í lok nóvember 2018 eftir að leynileg upptaka af samtali nokkurra alþingismanna af barnum Klaustur voru gerðar opinberar.