Frekkur
Athöfn sem felst í því að misnota samfélagsmiðlareikning einhvers sem skilur aðganginn sinn óvart eftir opinn, þannig að hver sem er getur komist inn á hann.
Sá eða sú sem tekur þátt í athöfninni skrifar eitthvað vandræðalegt eða ósatt fyrir hönd viðkomandi, t.d. skyndilega breytingu á kynhneigð eða hjúskaparstöðu.
Uppruni
Sett saman úr orðunum Facebook + hrekkur.
Dæmi um notkun
A: Er það satt sem ég var að heyra að þið Bjarni væruð byrjuð saman?
B: Nei. Þetta var nú bara frekkur á Facebook.