Stöðutaka
Athöfn sem felst í því að misnota samfélagsmiðlareikning einhvers sem skilur aðganginn sinn óvart eftir opinn, þannig að hver sem er getur komist inn á hann.
Sá eða sú sem tekur þátt í athöfninni skrifar eitthvað vandræðalegt eða ósatt fyrir hönd viðkomandi, t.d. skyndilega breytingu á kynhneigð eða hjúskaparstöðu.
Dæmi um notkun
A: Heyrðu, til hamingju með verðandi erfingjann. Ég sá það á Facebook!
B: Ég er ekkert ólétt! Þetta var bara stöðutaka.