Rafskúta
- Rafmagnshlaupahjól.
Hlaupahjól sem er knúið áfram af rafmagnsmótor.
Orðhlutinn -skúta er hljóðlíking af enska orðinu scooter. - Bátur með rafmagnsmótor.
Uppruni
Orðið var fyrst notað vorið eða sumarið 2019 þegar rafmagnshlaupahjól fóru að verða vinsæl á Íslandi.
Elsta prentaða dæmi um orðið er úr auglýsingu í Fréttablaðinu 25. mars 2019.
Dæmi um notkun
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur áhyggjur af aukinni notkun rafskúta bæði meðal barna og fullorðinna.“
(ruv.is, 22. maí 2020: Óttast að umferð rafskúta verði eins og villta vestrið)