Heyra
Heyrnartól
Uppruni
Líklega fyrst notað opinberlega 16. nóvember 2018. En hefur verið til í nokkur ár áður en það var gert opinbert.
Dóttir mín var dugleg að bæta íslenskuna þegar hún var lítil. Til dæmis: Heyru í stað heyrnartóla og mitt uppáhald, naglabjakk fyrir draslið sem þú berð á neglurnar til að hætta að naga þær. Síðan missti hún það, fór að horfa á Friends #pabbatwitter #daguríslenskrartungu
— Þórður Helgi Þórðar (@Doddilitli) 16 November 2018
Dæmi um notkun
Nennirðu að setja heyrun á þig, ef þú ætlar að hlusta á þessa tónlist? Ég get ekki unnið í þessum hávaða.