Jóðflóð
- Veisla sem vinkonur halda til heiðurs verðandi móður í vinkvennahópnum, oft án vitneskju móðurinnar fyrr en hún mætir í veisluna. Móðurinni eru færðar gjafir sem nýtast barninu þegar það fæðist.
Íslensk þýðing á hugtakinu baby shower. - Skyndileg fjölgun á barnsfæðingum.
Uppruni
Orðið í fyrri merkingunni heyrðist fyrst í febrúar 2024. En hefur líklega verið notað eitthvað lengur, a.m.k. tveimur árum lengur.
Í seinni merkingunni var orðið notað í Þjóðviljanum 27. mars 1987. En hefur lítið sem ekkert heyrst síðan þá.
Dæmi um notkun
„Í síðarnenfnda landinu kynni hinsvegar að draga til tíðinda því þar var uppgangs- og bjartsýnisskeiðið síðar á ferðinni og þar af leiðandi einnig fylgifiskurinn, jóðflóð tímgunargleðinnar.“