Geitin
Einhver eða eitthvað sem skarar fram úr eða er best/-ur í einhverju.
Íslensk þýðing á skammstöfuninni GOAT (G.O.A.T.) = Greatest of all time.
(En enska orðið goat merkir líka geit á íslensku).
Uppruni
Í þessari merkingu kom orðið líklega fram seinnihluta árs 2020 eða byrjun árs 2021.
Hefur verið mikið notað af íslenskum Twitter-notendum frá og með ársbyrjun 2021.
Að margra mati er þetta geitin, ég læt það vera að dæma um það... pic.twitter.com/K9M8fj9ZLC
— Blokkir eru bestar (@BlokkirB) April 30, 2021
Er þetta geitin?
Dæmi um notkun
„Samkvæmt mælingum á forritinu er inngarðurinn í gömlu verkamannabústöðunun á Hringbraut geitin, og er vel að því kominn.“