17. þáttur
Málfarslögreglan snýr aftur úr löngu og góðu Covid-fríi, skoðar nýyrði og gömul orð sem hafa gengið í endurnýjun lífdaga úr Kófinu, gefur Virkum góð ráð og svarar bréfum frá hlustendum.
- Hvað er þetta með faraldsfræði?
- Hví er skrifað kví?
- Förum við til Osló, Ósló eða Óslóar?
- Látum við deigan drúpa?
Svör við þessum spurningum gætu leynst í sautjánda þætti.