Menndurtekning
Það þegar kona leggur eitthvað til málanna, t.d. hugmynd eða tillögu, án þess að á hana sé hlustað, en þegar karlmaður leggur það sama til málanna er hlustað á hann og tekið mark á orðum hans og honum jafnvel eignaður heiðurinn að þeim.
Uppruni
Líklega fyrst notað opinberlega í janúar eða febrúar 2018.
Dæmi um notkun
Samtök kvenna í vísindum, SKVÍS, standa fyrir ráðstefnu þar sem fara á yfir hrútskýringar og menndurtekningar og skilgreiningar á því.