Bolur
Dæmigerð meðalmanneskja sem stundar hjarðhegðun, mætir á auglýsinga- og kynningarviðburði fyrirtækja til að fá ókeypis grillaðar pylsur og gos og bíður í biðröðum þegar nýjar verslanir eru opnaðar. Gengur um í bolum með auglýsingum og merkjum fyrirtækja sem hann/hún fær gefins. Nælir sér í fleiri ókeypis auglýsingavörur frá fyrirtækjum, s.s. penna, lyklakippur og derhúfur.
Uppruni
Björgvin Halldórsson mun fyrstur hafa notað orðið í þessari merkingu í laginu Bolur inn við bein.
Dæmi um notkun
„Það eru líklega allir Íslendingar bolir nema kannski Megas.“
Brimkló: Bolur inn við bein