Kósíkvöld
(Einnig þekkist rithátturinn kósýkvöld).
Kvöldstund, sem menn nýta til að slappa af, njóta lífsins og gera vel við sig, laus við áhyggjur og utanaðkomandi áreiti.
Sjá einnig: Vísindavefurinn: Hvað er kósí?
Uppruni
Elsta dæmið um orðið á prenti er úr tímaritinu Fregnum, fréttabréfi Félags bókasafnsfræðinga og Bókavarðarfélags Íslands, í desember 1989.
Notkun orðsins komst svo á flug eftir að samfélagsmiðlar (Facebook) urðu vinsælir meðal almennigs. Einnig eftir að lag Baggalúts, Kósíkvöld í kvöld, kom út árið 2008.
Dæmi um notkun
„Sæktu sloppana, ég skal poppa
það er kósíkvöld í kvöld.“
Baggalútur: Kósíkvöld í kvöld