Gönna
Keyra hratt. Jafnvel yfir leyfilegum hámarkshraða.
Einkum þekkt meðal íslenskra tístara, og þá í samhenginu gönna brautina.
Gönna brautina = Bruna Reykjanesbrautina.
Uppruni
Elsta skriflega heimild sem fundist hefur er úr tísti frá 2014. Upphafsmaður orðasambandsins gönna brautina er óþekktur.
Fyndið að sjá túrista gönna brautina á 140km hraða haldandi að það sé bara löglegt #nopopo
— kristjanamargret (@kmsnorradottir) July 11, 2014
Dæmi um notkun
„best væri náttúrulega að gönna brautina á rauðum Buick Skylark, 94 módeli. Þegar þetta gin straujar Kúagerði þá brosir Guð gleiðu brosi á himnum. Fullkomnun“